Rafræn sending gagna

Yfirlit yfir gáttir sem dómstólar nota við sendingu og móttöku rafrænna gagna

Vinsamlegast athugið að samkvæmt 2. mgr. 208. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og 3. mgr. bráðabirgðarákvæðis X. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála teljast skjöl og sýnileg sönnunargögn sem leggja skal fram vegna reksturs máls afhent dómstól berist þau honum sannanlega rafrænt innan tilskilins frest, enda verði dómstól sendur í pósti og án ástæðulauss dráttar tilskilinn fjölda eintaka skjalanna og annarra sýnilegra sönnunargagna. Málsaðila er skylt að afhenda gagnaðila samtímis með sama hætti skjöl og sýnileg sönnunargögn sem þannig eru afhent dómstól.

Ef upp koma vandamál við notkun ætti að hafa samband við viðkomandi dómstól.

Aðrar gáttir en réttarvörslugáttin eru tímabundnar lausnir þar til réttavörslugáttin hefur verið þróuð og innleidd.

Héraðsdómstólar

Landsréttur

  • Vefgátt dómstóla
    • Áfrýjuð einkamál, áfrýjunarstefna og staðfest endurrit héraðsdóms.
    • Ágrip, greinargerðir og fylgigögn.

 

Hæstiréttur

  • Þjónustugáttin
    • Beiðnir um áfrýjunarleyfi og umsagnir gagnaðila.

  • Leiðbeiningar

  • Skjalagátt
    • Almenn innsending gagna, þ. á m. rafræn ágrip, kærumálsgögn, greinargerðir og önnur gögn sem ekki er unnt að senda í þjónustugátt