Reglur dómstólasýslunnar nr. 5/2018
1. gr.
Þingstaðir héraðsdómstóla eru sem hér segir:
1.	Héraðsdómur Reykjavíkur: Aðsetur dómsins í dómhúsinu við Lækjartorg í Reykjavík.
2.	Héraðsdómur Vesturlands: Aðsetur dómsins að Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi.
3.	Héraðsdómur Vestufjarða: Aðsetur dómsins að Hafnarstræti 9 á Ísafirði.
4.	Héraðsdómur Norðurlands vestra: Aðsetur dómsins að Skagfirðingabraut 21 á Sauðárkróki.
5.	Héraðsdómur Noðurlands eystra: Aðsetur dómsins að Hafnarstræti 107 á Akureyri.
6.	Héraðsdómur Austurlands: Aðsetur dómsins að Lyngási 15 á Egilsstöðum
7.	Héraðsdómur Suðurlands:
        a.	Þinghá sem tekur til sveitarfélaganna Skaftárhrepps, Mýrdalshrepps, Ásahrepps, Flóahrepps, Bláskógabyggðar, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Hrunamannahrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hveragerðisbæjar,               Sveitarfélagsins Ölfus og Sveitarfélagsins Árborgar: Aðsetur dómsins að Austurvegi 4 á Selfossi.
        b.	Þinghá sem tekur til Vestmannaeyjabæjar: Hjá sýslumanninum í Vestmaeyjum að Heiðarvegi 15 í Vestmannaeyjum.   		
8.	Héraðsdómur Reykjaness: Aðsetur dómsins að Fjarðargögu 9 í Hafnarfirði.
2. gr.
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla. Þær öðlast gildi 1. janúar 2018.
Þannig samþykkt í stjórn dómstólasýslunnar
11. desember 2017.
Benedikt Bogason
formaður stjórnar dómstólasýslunnar.