Dómstólar hafa það hlutverk að skera úr um ágreining milli aðila og hvort einstaklingar, lögaðilar eða opinberir aðilar hafi brotið gegn lögum.
Þjónusta á sviði dómstólanna og tengt efni
- Rafræn sending gagna
- Persónuverndarstefna dómstólanna og dómstólasýslunnar
- Spurningar og svör varðandi réttarkerfið, búsforræðisvottorð, gjaldskrá dómstólanna, ársskýrslur (og tölfræði héraðsdómstólanna) og fleira.
- Ósk um skipun sem skiptastjóri eða umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum
- Sérfróðir meðdómsmenn
- Stefna dómstólasýslunnar um öryggi í húsnæði dómstóla
- Eineltisáætlun dómstólanna
- Jafnlaunastefna
- Fræðslustefna dómstólasýslunnar
- Námsleyfi
- Starfsmenntunarsjóður dómara
Meginmarkmið þjónustu dómstólanna og dómstólasýslunnar
Réttlát opinber málsmeðferð
Sjálfstæðir og óvilhallir dómstólar
Dómarar eru sjálfstæðir í dómstörfum og leysa þau af hendi á eigin ábyrgð. Við úrlausn máls fara þeir eingöngu eftir lögum og lúta þar aldrei boðvaldi annarra eða láta óviðkomandi sjónarmið hafa áhrif á störf sín. Dómstólasýslan virðir og stuðlar að sjálfstæði dómstóla í störfum sínum.
Traust til dómstóla
Gagnsæi er undirstaða trausts. Dómstólarnir og dómstólasýslan vinna að því að gera hlutverk og starfsemi dómstóla sýnilega í samfélaginu.
Samræmd framkvæmd dómstóla stuðlar að trausti. Dómstólar og dómstólasýslan vinna að því að tryggja samræmi við framkvæmd verkefna dómstóla.
Notendamiðuð og nútímaleg þjónusta
Upplýsingum um starfsemi dómstóla er miðlað á notendavænan og nútímalegan hátt. Leitast er við að tryggja að starfsfólk dómstóla, fjölmiðlar og allur almenningur séu vel upplýst um starfsemina og eigi auðvelt með að nálgast upplýsingar. Leitað er reglulega sjónarmiða notenda, lögmanna, fjölmiðla og annarra hagaðila um gæði þjónustu dómstóla og hvernig hana megi bæta.