Hlutverk dómstólasýslunnar felst meðal annars í því að:

  • Leggja mat á og gera tillögu til ráðherra um nauðsynlegar fjárveitingar til dómstólanna,
  • Ákveða fjölda héraðsdómara og annarra starfsmanna við hvern héraðsdómstól,
  • Veita dómurum leyfi og skipuleggja símenntun dómara og annarra starfsmanna dómstólanna,
  • Vera í fyrirsvari fyrir sameiginlega stjórnsýslu dómstólanna og koma fram gagnvart stjórnvöldum, fjölmiðlum og öðrum í þágu dómstólanna sameiginlega,
  • Fara með yfirstjórn upplýsingamála og tæknimála við dómstólana og annast þróun þeirra,
  • Safna saman og birta upplýsingar um fjölda og afgreiðslu mála við dómstóla og gefa út ársskýrslu um starfsemi sína og dómstólanna,
  • Stuðla að samræmingu og hafa eftirlit með framkvæmd reglna um málaskrár dómstóla, þingbækur, atkvæðabækur, búnað til upptöku á hljóði og mynd í þinghöldum, dómabækur og varðveislu málsskjala og upptaka í þinghöldum hjá dómstólum,
  • Gera tillögur um hvað eina sem getur orðið til úrbóta í störfum dómstóla og löggjöf sem um þá gilda.
Stefnur dómstóla og dómstólasýslunnar

Ársskýrslur

Tölfræði 2023

Stjórn dómstólasýslunnar skipa:

Sigurður Tómas Magnússon,  hæstaréttardómari, formaður. Varamaður hans er Björg Thorarensen, hæstaréttardómari.

Jón Höskuldsson, landsréttardómari. Varamaður hans er Arnfríður Einarsdóttir, landsréttardómari.

Lilja Björk Sigurjónsdóttir, gæðastjóri. Varamaður hennar er Erna Björt Árnadóttir, aðstoðarmaður dómara. 

Arnaldur Hjartarson, héraðsdómari. Varamaður hans er Daði Kristjánsson, héraðsdómari. 

Lúðvík Örn Steinarsson, lögmaður. Varamaður hans er Þyrí Halla Steingrímsdóttir, lögmaður. 
»Fundargerðir stjórnar

 

Framkvæmdastjóri dómstólasýslunnar er Kristín Haraldsdóttir.

»Starfsmenn dómstólasýslunnar

 

»Fyrirvari um birtingar efnis á heimasíðu dómstólasýslunnar