Stafræn útgáfa búsforræðisvottorðs

Dómstólasýslan hefur unnið með Dómsmálaráðuneytinu og Stafrænu Íslandi að stafrænni útgáfu einnar tegundar búsforræðisvottorða. Búsforræðisvottorðið – vottorð um að bú einstaklings eða fyrirtækis sé ekki til gjaldþrotaskiptameðferðar er nú hægt að nálgast rafrænt í gegnum Ísland.is. Þar geta einstaklingar og fyrirtæki gengið frá umsókn, greitt fyrir og fengið vottorðið sent í pósthólfið sitt á Ísland.is með einföldum hætti. Ljóst er að breytingin felur í sér mikið hagræði fyrir umsækjendur vottorðsins og starfsmenn dómstólanna sem hafa haft umsjón með verkefninu fram til þessa.