Námskeið fyrir matsmenn – 1. og 2. september

Lögmannafélag Íslands og dómstólasýslan standa fyrir námskeiði fyrir dómkvadda matsmenn. Farið verður yfir hlutverk matsmanna og starf þeirra frá dómkvaðningu og þar til þeir skila matsgerð og/eða mæta fyrir dóm.

Þá verður farið yfir ákvæði einkamálalaga sem varða störf matsmanna og samningu og uppsetningu matsgerða, undirbúning matsfunda og störf á vettvangi. Í lok síðari námskeiðsdags verður farið í Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem nánar er upplýst um samskipti dómkvaddra matsmanna við dómstólana.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa verið matsmenn eða vilja gefa kost á sér sem matsmenn fyrir dómi á sínu sérsviði, s.s. iðnaðarmönnum, tæknifræðingum, verkfræðingum, læknum, sálfræðingum, viðskiptafræðingum og endurskoðendum. 

Handbók með ítarlegum leiðbeiningum fyrir dómkvadda matsmenn er innifalin í námskeiðsgjaldi en þátttakendum býðst svo að verða skráðir á lista yfir matsmenn.

Kennarar:  Viðar Lúðvíksson lögmaður hjá Landslögum og Ragnar Ómarsson byggingafræðingur á Verkfræðistofunni Verkís, formaður Matsmannafélags Íslands.
Staður:     Safnaðarheimili Háteigskirkju, Háteigsvegi 27-29, 105 Rvk. og Héraðsdómur Reykjavíkur.
Tími:         Alls 7 klst. Miðvikudagur 1. september kl. 13.00-16.00 og fimmtudagur 2. september kl. 9-12.
Verð:         Kr. 47.000,-

Greiðsla verður að hafa borist fyrir þriðjudaginn 31. ágúst inn á reikning 334-26-1207, kt. 450269-2209.