Ársskýrsla 2024

Ársskýrsla Hæstaréttar Íslands, Landsréttar, héraðsdómstóla og dómstólasýslunnar fyrir árið 2024 er komin út.

Í ársskýrslunni er gerð grein fyrir starfsemi dómstóla og dómstólasýslunnar á árinu. Hún tekur mið af stefnu dómstóla fyrir árin 2023-2027 þar sem áherslurnar eru stafrænt dómskerfi, upplýsingagjöf og fræðsla, mannauður og færni auk húsnæðis– og öryggismála.

Í ársskýrslunni eru einnig tölulegar upplýsingar um fjölda mála og meðalmálsmeðferðartíma á öllum dómstigum.

Ársskýrsla 2024