Tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar

Dómsmálaráðuneyti birti fyrr í dag frétt á vef stjórnarráðsins þar sem vakin er athygli á því að tvö embætti dómara við Landsrétt hafa verið auglýst laus til umsóknar. Auglýsingarnar birtust í Lögbirtingablaði og dagblöðum með nokkurra daga millibili og mun ráðuneytinu hafa borist fyrirspurnir hvort um eitt og sama embættið sé að ræða. Vill ráðuneytið koma því á framfæri að embættin eru tvö. 
Hlekkur á frétt dómsmálaráðuneytis